Skráning viðskiptavina Opinna Kerfa á ráðstefnu.

Opin Kerfi stendur fyrir áhugaverðri ráðstefnu um netöryggismál þann 6. mars næstkomandi á Grand Hótel.
Umræðuefnið er netöryggismál frá öllum sjónarhornum hvað varðar öryggi þjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Við fáum til okkar marga áhugaverða fyrirlesara, bæði innlenda og erlenda og frá helstu hagsmunaaðilum innanlands.

Erlendir fyrirlesarar eru Laura Galante er þekktur alþjóðlegur netöryggisráðgjafi sem hefur hún unnið fyrir fjölda þjóðríkja í varnar- og öryggismálum og Pablos Holman er heimsþekktur fyrrverandi hakkari sem vinnur m.a. fyrir Bill Gates.
Við fáum einnig að heyra fyrirlestra frá Helgu Þórisdóttur hjá Persónuvernd, Sigurði Emil Pálssyni hjá Netöryggisráði, Theodóri Ragnari Gíslasyni frá Syndis, Jónasi Inga Péturssyni frá Ríkislögreglustjóra og Kristni Guðjónssyni sem starfar hjá Google.

Í lok ráðstefnunnar verða pallborðsumræður þar sem þátttakendur geta varpað fram spurningum.
Fundarstjórn er í höndum Helgu Arnadóttur.

Við teljum að þetta sé mjög áhugaverður vettvangur fyrir alla sem áhuga hafa á þróun þessara mála, hvert er stefnt og þá sem láta sig þessi mál varða.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna.

Miðaverð: 28.900 kr.